Við viljum að fyrsta heimsókn barns til tannlæknis sé sem ánægjulegust og fari fram eigi síðar en við 3 ára aldur. Mikilvægt er að byrja snemma, huga að forvörnum, venja börn við umhverfið og byggja upp traust.
Það getur verið slæmt að mæta með börn í fyrsta skipti á tannlæknastofu þegar fyrsti verkurinn er kominn, því þá er hætt við að tíminn verði börnunum erfiður og upplifunin ekki ánægjuleg.
Það getur tekið dálítinn tíma fyrir börn að upplifa jákvæða stund á tannlæknastofunni ef fyrsta heimsóknin er ekki jákvæð.
Það hefur ýmislegt breyst í tannlækningum á síðustu árum og mikilvægt er að fylgst sé vel með börnunum því forvörn er besta meðferðin.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða þarft aðstoð með eitthvað, hafðu þá samband.